Bloggið dautt?
Ég ákvað samt að setjast niður og skrifa eina stutta færslu.
Það hefur svo sem ekki mikið gerst síðustu vikurnar í lífi mínu, allt hefur sinn vanagang og nú er komið þetta ágætis sumar sem lofar góðu. Nú um helgina fór ég nú samt í þórsmörk með Áslaugu, Ragga, Thelmu, Hjalta og Berglindi sem var virkilega skemmtileg og vel heppnuð ferð og veðrið bara ágætt þrátt fyrir frekar mikinn vind. Ég er samt alltaf að komast að því að það klæðir mig ekki að sofa í tjaldi, ég er svo mikil Primadonna..
En þangað til næst.... bless í bili elskurnar.
daglegt líf.....
Núna er að koma maí og allir að læra fyrir próf nema við pakkið sem ákváðum að taka okkur frí, við sjáum auðvitað ekkert eftir því en frekar skrítið að geta gert hvað sem er núna, en ekki sitja sveitt yfir glósum og bókum...
En þið sem eruð í prófum, gangi ykkur vel.
Þar síðasta helgi var heldur betur skemmtileg. Á föstudeginum var ég heima hjá Áslaugu ásam Thelmu og Berglindi sem var að koma heim frá Spáni eftir 8 mánaða dvöl í því ágæta landi, mjög skemmtilegt kvöld þar. Á laugadeginum ákvað Finnur að halda svona lítið teiti þar sem hann hafði orðið 21 árs gamall þá vikuna, til hamingju með það Finnur minn. Það partý var frábært í alla staði, fullt af nýju skemmtilegu fólki og auðvitað slatti af áfengi við hönd. Eftir það var farið niður í bæ þar sem allir gerðust partý-púkar og vildu fara heim nema ég (aldrei þessu vant) svo ég auðvitað neyddist til að fara heim þar sem peningastaðan var ekki góð og ég hefði aldrei haft efni á leigubíl heim.
En framundan eru margar skemmtilegar helgar, afi 70 ára næsta laugadag, svo kosningar og Eurovision og auðvitað afmælið hennar Báru minnar...
jæja, læt þetta gott heita í bili....
Ykkar Gerður Anna
Flórída.
Ég skal nú samt viðurkenna að ég er búin að sakna allra heima. Vildi helst hafa alla með mér hérna, þá er fríið fullkomnað. Við erum sko búin að gera margt skemmtilegt í þessari ferð en eins og flestir vita þá eru amma og afi með okkur í ferðinni, alls ekki verra. Við erum meðal annars búin að fara í Busch gardens sem er skemmtigarður og vatnsgarður, mjög gaman. við vorum dugleg að versla á daginn en einnig aðeins að kíkja á sólina. Á kvöldin höfum við fundið okkur ýmislegt skemmtilegt að gera, meðal annars mini-golf og go-kart. við vorum í fínu húsi sem við leigðum og nutum þess einnig bara að vera heima og hafa það huggulegt.
Núna sitjum við hérna í Orlando og bíðum eftir að eiga að fara af hótelinu og chilla þangað til vélin okkar fer heim um 11 á íslenkum tíma í kvöld.... Ég verð mætt á klakann í fyrramálið, friðurinn er úti elskurnar....
P.S. Birgir, taktu vel til eftir partýin....:) Sjáumst elskurnar.
Róleg helgi....
En ég er viss um að það batnar allt þegar stelpurnar mínar koma heim, þá verða ekki rólegar næstu helgar....
En þegar þær koma þá fara Valli, Dóri og Jói sem verður ekki gaman, partýljónin að yfirgefa landið....
En þeir munu vonandi skemmta sér vel og skoða heiminn fyrir okkur hin....Það er einmitt velkomin heim partý fyrir stelpurnar næsta föstudag og svo kveðjupartý fyrir strákana á laugadaginn svo það er nóg að gera. Svo helgina eftir það er ég að vona að Bára geti kannski reddað okkur krökkunum bústað svo að við getum haft eina kósý helgi í pottinum með bjór....
Svo eru aðeins 19.dagar í Flórída, sem án efa verður frábær ferð í alla staði.Jæja, ég vona að vikan ykkar verði góð....
Kveðja Gerður
Flensan...
Jamm, við Elín erum orðnar mjög spenntar að fá stelpurnar heim eftir einmitt viku í dag...erum meira að segja búnar að panta borð á American Style klukkan 7 þann 8. mars næstkomandi, veitir ekki af góðum fyrirvara enda ekkert smá vinsæll staður...
En jamm, eins og ég segi, takið ykkur spólu ef þið vitið að þið eruð að verða veik, amk ekkert í TV!!!
Fröken Anna Larsen lasna!
Lífið....

En þess á milli þakkar maður auðvitað fyrir það sem maður hefur og veit að þetta er gangur lífsins.
Það hefur ekki mikið gerst hjá mér undanfarið nema vinna og sjúkraþjálfun sem er að sjálfu sér nokkuð notalegt líf. ÉG vildi bara koma frá mér þessum hugsunum.
Ykkar Anna Larsen
París...
Mamma var flugfreyja í fluginu heim og gat aðeins gefið okkur Óskari smá extra-þjónustu, ekki slæmt.
Jæja, nú er bara að hlakka til næstu utanlandsferðar, Flórída, þann 23.mars!
Þetta er nóg í bili... Kveðja Gerður Anna (Anna Larsen)
Sorglegt tap...
Já, annars er lítið um lífið að segja. Ég er búin að fá óskir um alls kynd gúmmelaði sem ég á að taka með mér í farteskið til parísar á föstudaginn, og mun ég að sjálfsögðu reyna að verða við óskum allra í þeim málum...
Jæja, ég er farin niður að gráta...
Anna Larsen sem er búin að snúa baki við grönnum sínum dönum....
Áfram Ísland....
Ég er nú mest lítið búin að gera þessa helgi nema horfa á spólu bæði kvödin og líkaði bara ágætlega. Svo er það vonandi bíóferð í kvöld þar sem það er nú sunnudagur!!!

Nú styttist í helgarferðina mína til Parísar og er ekki annað hægt að segja en að það sé kominn smá spenningur í mig, amk svona að sjá París í fyrsta sinn í góðra vina hópi.
Jæja, Nú er bara kominn matur og ég bið að heilsa í bili.... Anna Larsen
Erilsöm helgi!
Ég var í kaffiboði hjá Unni hans Vidda í dag ásamt allri fjölskyldunni, mjög huggulegt og vel lukkað.

Annars er lítið búið að vera gert undanfarna daga nema vinna, sjúkraþjálfun og er svo að byrja í ræktinni, aldrei of seint að taka sig á...
Svo er aldrei að vita nema maður finni sér einn sætan þarna í Orkuverinu, amk nóg af svona massakögglum...Ég talaði aðeins við elsku bestu vinkonur mínar á föstudaginn og þær voru bara ansi sprækar, enda ekki skrítið, bara að njóta lífsins í botn í Montpellier, hvað er betra?
Amk, ekki að vera hérna í þessum skítakulda á klakanum.
Jæja, ég er farin að sofa svo ég verði spræk í vinnunni á mogun....
Anna Larsen